Love is in the air :*
Rhodos me�?° VMA!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1727 dögum
28.08.2008 13:27:10 / Brynja

I'm BACK!

Já hæ!

Þar sem ég er orðin fullorðin þá verð ég að halda áfram að blogga, annað gengur ekki!

Ég og Biggi erum orðin Hafnfirðingar, þannig að þið megið endilega skjóta á okkur með bröndurum! Við fluttum í kózý stúdentaíbúð, sem er á móti Álverinu ( ég er ekki að djóka!)

Talandi um Álverið.. þegar ég var lítið hélt ég að það héti ÁLFverið og í ÁLFverinu væru litlu SÁÁ álfarnir búnir til :haha: en það er víst ekki svoleiðis, ég komst að því fyrir stuttu. Þarna er bara búið til ál.

En við erum búin að koma okkur fyrir og allt svakalega fínt og flott. Fengum frábærar innflutningsgjafir, TAKK ALLIR, sem munu sko koma sér vel. Svo eigum við bæði langbestustu foreldra í heimi sem studdu okkur og hjálpuðu okkur að koma okkur fyrir! :)

Ég er líka byrjuð í Háskóla Íslands í þroskaþjálfafræði. Mér finnst svo hrikalega gaman að vinna með fötluðum að það er ekkert annað í stöðunni enn að mennta sig í þeim málum. Ég reyndar er ekki að finna mig neitt rosalega mikið í skólanum, þekki reyndar eina stelpu svo það er fínt. ENN þetta er fyrsta vikan, maður verður að gefa þessu séns.

Ég er að vinna á 2 sambýlum núna, bæði mjög ólík og miskrefjandi, en bæði svakalega skemmtileg. Þau eiga sína kosti og ókosti :lol:

Núna sit ég ein í kotinu að reyna að læra, ég bara kemst ekki inn á eitt né neitt þannig að lærdómurinn verður að bíða betri tíma. Ég læri bara á Facebook í staðinn :)

En ég vona að fólk sé ánægt með það að ég sé farin að skrifa aftur.Það voru komnar all-nokkrar beiðnir um þetta allt saman.

Heyrumst fljótlega

Brynja háskólastelpa sem á enga vini þar


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 22:35:43 / Brynja

2008!

Sælt veri fólkið, gleðilegt nýtt ár og bless jól og allt það :)

Djöfull er langt síðan ég kom með eitthvað hingað inn! ég er bara búin að vera ótrúlega tímabundin og ÞREYTT! En allavegana..smá punktar..

  • 21. desember varð ég STÚDENT! Mikill áfangi þar á ferð. Það var veisla heima sem var mjög svo skemmtileg og allir vel hellaðir og veitingarnar voru brill!
  • 24. desember voru svo jólin. Ég fékk alveg helling í jólagjöf og er ánægð með það allt! :)
  • 28.des héldum við Hera smá útskriftarteiti sem heppnaðist sjúklega vel, var ekkert smá gaman
  • 29. des fór ég á JESUSCHRISTSUPERSTAR. jújú.. mjög svo gaman
  • 31. des voru svo áramótin. Ég var EDRÚ og skemmti mér konunglega. Við Biggi fórum í teiti til Nóra :)
  • 2.des Fanney og Jói FLUTT í bæinn. Loksins getur maður hangið með vinum sem actually er sama um mann og nenna eitthvað að rækta vináttuna. Þeir sem eiga taka til sín. Ég byrjaði líka í dagvinnunni minni sem er bara brill. Hæfingastöð fyrir fatlaða. Ellen MK útskriftarskvisa byrjaði einnig á sama stað.
  • 4-6. des fór ég til Eyja með Bigga og hans family. Mjög fínt en ég fer ALDREEEEEEEEEIIIIIIIII aftur í fokking Herjólf. *hrollur*

Fyrir utan þetta er ég búin að panta 2 utanlandsferðir. Benedorm með minni family og Bigga, svo gáfu foreldrar Bigga okkur krökkunum Rhodosferð þannig að það stefnir í gott sumar! :haha:

Svo förum við Stína mín fína í Spæsgörls leiðangur til London 20. jan. Það varð smá ruglingur með miðana sem er búið að redda SEM BETUR FER! *þurrkasvitann*

En ég sver það er að líða yfir mig hérna. Er í vinnunni til 11 og þá ætlar ástin mín að vera búnn að panta pizzu og gera kósi. Er ekki búin að éta neitt síðan kl 2 og svo fór ég í Herjólf og þar fór allt magasystemið mitt í fokk

En jæja.. ég ætla að fara að vera duglegri í þessu kids.

Heyrumzt- Brynja


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 21:07:02 / Brynja

OMG, ÞÚST!?

Já..kannisti við það að vera á MSN að tala við Kristínu og svo fara samtölin bara út í eitthvað RÖGL!? það gerist soldið oft hjá okkur stöllum. Vildi koma með smá dæmi sem er í gangi núna:

Við vorum semsagt að pæla í að hafa "gelgjukveld". Leigja eimhverja chick-flick og hafa gaman.. það kom svona út:

Kristín - nennekkiaðlæra  says:
bra gegt !
  Brynja   says:
bra þúst ógisslega gegt fönn eikkað
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
játs
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
skom ég bra sagði þúst omg hvaddað pæla skirlu
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
skilru
  Brynja   says:
omg og wtf hva sagði hún eilega, var hún ekki bra like omg þúst what!?
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
OMG
  Brynja   says:
já ég veit ýkt mikið skoh! og ég líka bra: Ok þúst.. ertekkað kidda mig eða!?
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
OMG !
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
þúst
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
bra
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
skomm
  Brynja   says:
eikkað!!!
  Brynja   says:
ok OMG veistu hvað sigga var að seija mér? Hún bra eikkað:Þúst þaddna siggi, hann var bra eikkað að reyna vimmig í gær og þúst ég bara omg wtf hættisu og hann bara neimar!
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
óggsla !
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
og þúst hva so ?
  Brynja   says:
ok skoh þú átt like aldrei eftir að trúissu! Sigga bara: OMG HÆTTISSU ÓGEÐIÐ ÞITT og bra sló hann so ógisslega fast að siggi bara fór eikkað að grenja! þúst LOOOSEEEER
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
ÓGSLA
  Brynja   says:
oh þúst.. ógisslega eikkað mikill aumingji þúst að fara að fokking grenja þúst omg what is that
Kristín - nennekkiaðlæra  says:
óglsa !

 Já.. það er sko gaman að vera SIR!

Brynja


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 12:55:56 / Brynja

FINE KRISTÍN!

Já Kristín kann sig ekki alveg, frekjan alveg að gera út af við mann stundum! ÉG SKAL ÞÁ BLOGGA!!!

Ég held ég hafi þetta bara punktafærslu í þetta skiptið:

  • Ég og Kristín stuð fórum 2x í bíó í vikunni. Fyrst á Across the Universe sem var heldur betur ánægjuleg og kom manni í stuð, svo var það Sidney White sem er topp gelgjumynd og ég fílaði hana í tætlur. Ekkert nema gott um það að segja :)
  • Í tilefni myndarinnar Across the Universe er ég núna að fara að ráðum Kristínar og er að dánlóda lögunum úr myndinni sem eru snilld!
  • Ég keypti mér líka Hairspray á dögunum OG SpiceGirls disk og gerði þar með eitthvað sem ég hef ekki gert í mörg ár. (Kaupa CD og DVD)
  • Ég hef enn ekki keypt eina einustu jólagjöf og mér liggur ekkert á, er ekki að nenna því að fara í Smáralind eða Kringluna! *hrmpf*
  • Útskriftardressið er komið LOKSINS og ég vona bara að ég nái að útskrifast ;)
  • Ég og Hera erum búnar að leigja sal 28. des fyrir útskriftarteitið okkar, þið eruð svo sannarlega merkileg ef þið fáið boð þangað! :)
  • Fór á jólahlaðborð á Broadway á laugardaginn og George Michael showið, það var bara fínt! Biggi eyddi 13.000 krónum á barnum takk fyrir og gleðileg jól!

En allavegana.. vá hvað blogg eru leiðinleg.. held ég haldi mig bara við myspace. GO THERE!

Brynja

Soldið dúlló sem ScoobyDoo á Dimmisjon


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 15:02:51 / Brynja

Dimmitering o.fl.

Okey talandi um lélegan bloggara. Síðasta blogg var 15. nóvember. Er myspace að taka yfir?

Vitiði hvað? Í gær DIMMITERAÐI ég, Brynja Eyþórsdóttir. Vá hvað það var alltof ógeðslega gaman!

Smá frá deginum: Ég vaknaði klukkan 05:30 ógeðslega þreytt, enda búin að sofa í 3-4 tíma :S var bara að spá í að sleppa þessu en sem betur fer mætti ég! Við byrjuðum klukkan 6 að drekka niðrí KIRKJU! hehe það var svolítið steikt að vera með morgunfyllerí í Vídalínskirkju í Garðabæ.

Allavegana við sturtuðum í okkur 3-4 bjórum og fórum svo niður í skóla klukkan 8 í morgunmat í boði kennara. Það voru GEÐVEIK GÓÐ rúnstykki, kakó með rjóma og kleinur. Andra fannst rúnstykkin ekkert smá girnó og líka rjóminn svo hann fékk sér bara rúnstykki með rjóma ;) gott að redda sér sona..

Eftir smá nart þá fórum við niður í íþróttahús þar sem allir fengu sér 1-2 bjóra í viðbór og við fórum í fallegu voffabúningana okkar. Svo æfðum við lögin og fleira. Klukkan hálf 10 hlupum við svo niðrí skóla og létum eins og fífl í klukkutíma. Sungum, létum kennarana gera ýmsar kúnstir og fleira. Skólastjórinn var víst ekkert alltof sáttur við það hvað við vorum drukkin, en ég meina, KOMMON! við erum að dimmitera sem gerist bara einu sinni á ævinni!!

Eftir fíflalætin var okkur svo boðið í kökuhlaðborð en ég hafði sko EKKI lyst á kökum á þessum tíma dags í bland við bjór *gubb*

Fólkið hakkaði í sig kökur og svo kom rúta að ná í okkur sem keyrði okkur í keiluhöllina. Þar fengum við okkur fleiri bjóra, 3 eða svo á mann og keiluðum . Ég get svo svarið það að það var ekki EIN manneskja að nenna að keila! Við vorum öll út um allt og það var enginn beint að nennissu. Ég var einmitt ein af þessum sem vildi bara spjalla og drekka!

Eftir þessa frábæru keilu kom Biggi minn að sækja mig, Heru, Andra og Ragga og keyrði okkur í Kringluna því við vorum svo ógeðslega svöng! Fórum á Stjörnutorg og átum á meðan Raggi hélt uppi stuðinu ;)

Eftir Kringluna héldum við niður í bæ þar sem Raggi fór enn og aftur á kostum og ég hélt ég myndi pissa á mig úr hlátri! Við fórum svo í GYLLTA KÖTTINN í ScoobyDoo búning og kallarnir okkar Heru versluðu smá handa okkur ;)

Eftir það var ég bara búin á því og fór heim, en hin héldu áfram á e-rjum bar. Ég fór til Bigga og STEINROTAÐIST eftir 2 familyguy þætti.

Ég vaknaði svo eftir 1 og hálfan tíma. Eða.. eiginlega 2 og hálfan því Biggi var alveg í klukkutíma að vekja mig. Vá það var erfitt að vakna! ÉG var bara að spá í því að sleppa kvöldinu líka og sofa bara. Ennn.. ég ákvað nú að drullast á fætur, smá hausverkur, og fara að gera mig til fyrir kvöldið. Ég fór í sturtu, gerði hárið mitt og málaði mig á METTÍMA og fór svo niður í Auðbrekku þar sem við, útskriftarhópurinn, vorum búin að leigja sal og veisluþjónustu. Við fengum 3. rétta máltíð sem var dásamleg. SÉRSTALEGA SÚPAN SEM VAR Í FORRÉTT *mmm* Kennararnir voru auðvitað líka á svæðinu að djúsa með okkur og þau voru með atriði sem var víst snilld! Ég missti af því þar sem ég var úti :( Ég og Hera MISSTUM okkur aðeins á barnum *ehm* tróðum í okkur Tekíla og bjór og allir voru orðinir OFUR hressir um 12 leytið. Þá var byrjað að dansa, syngja og hlæja.

Klukkan 1 kom Biggi og sótti mig þar sem ég var eiginlega búin á því og hinir héldu í bæinn. Ég og Biggi fengum okkur pizzu og ég rotaðist stuttu eftir það.

Frábær dagur í ALLA staði :) en nóttin var sko ekki eins frábær..

..ég vaknaði um 6 leytið í morgun með VERSTA SINADRÁTT sem sögur fara af. Ég ýtti við Bigga því ég gat ekki talað bara táraðist á fullu og gaf frá mér smá vein. Þetta stóð yfir í alltof langan tíma og ég gat ekki hreyft fótinn eftir þetta því ef ég ætlaði að hreyfa hann byrjaði krampinn að koma aftur! :( ohh það er svo sárt að fá sinadrátt..

Í morgun REIF ÉG MIG á fætur klukkan 10 takk fyrir, sótti bílinn minn niður í kirkju og hér er ég í vinnunni. Við erum að fara á Hitman klukkan 4 og svo fer ég vonandi heim um 7-8 leytið. Það er leiklistarteiti í kveld og AUÐVITAÐ læt ég sjá mig þar elskurnar ;)

Heyriði.. ég skelli inn myndum helst á morgun :) endilega KVITTA!

- Brynja með auma kálfann.

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 23:56:35 / Brynja

Oh yeah

Þið trúið þessu ALDREI krakkar! En ÉG, Brynja Eyþórsdóttir, er að fara ásamt Kristínu Guðjónsdóttur ÁÁÁÁÁÁ....

SPICE GIRLS TÓNLEIKA 22. JANÚAR! já sæll!?

Ég er með hlakki-fiðrildi í mallanum :haha:

Hvað er betra en ég:

Nov 12, 2006

Kristín:

OG SPÆS GÖRLS?!


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 21:29:54 / Brynja

Sigh..

Ég veit ekki alveg afhverju ég er að standa í þessu bloggveseni. Kannski vegna þess að það er frekar gott að hafa EITTHVAÐ að gera hérna í vinnunni. Það er samt rosalega spes að það sé EKKERT í sjónvarpinu hérna í kvöld! samt erum við með eiginlega allar stöðvar...

ANYWHO/WHY/HOW: Allt gott að frétta bara. Ég fór að DJAMMA um helgina.. innflutningsteiti hjá Nóra og Önnu. Svaka stuð og GEÐVEIK íbúð *öfund*. Þau fengu heila 3 örbylgjuofna í innflutningsgjöf haha, en okkar var fyrstur upp, enda langflottastur 8) við vorum hjá þeim til alveg að verða 3 og þá gerði ég þau risastóru mistök að fara í bæinn. Já.. 1. lagi þá sökkar það, í 2. lagi þá voru skilríkin mín útrunnin svo ég fór í fýlu og henti þeim :( nr 3... já það sökkar bara aftur. Alltaf þarf djamm hjá okkur Bigga að enda illa, en þó vel.. (gera ykkur smá forvitin) EN í heildina var þetta bara svka stuð. Takk fyrir okkur. Hey..Stebbi gerði svo ROSALEGA merkilega uppgötvun! Check this out. Biggi (L) Brynja, Stebbi(L)Sigrún og Arnór(L) Anna. PÖRIN EIGA ÖLL SAMA STAF. Þetta er sko heimsspeki.

Ég samt hef ekkert að segja, as usual, engar myndir á leiðinni þar sem ég tók EINA HEILA mynd um helgina hehe, ég er svo dúleg 8)

en ég er farin að bora í nefið og gúggla svo hor

Brynja


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 18:06:52 / Brynja

HoHoHo We Say HeyHeyHey

Ég og Biggi vorum að færa sambandð okkar á hærra stig...VIÐ KEYPTUM OKKUR TVÍBREIÐA SÆNG 8) og ég fékk að velja rúmfötin sem eru svört með neon-grænum köllum að dansa :lol: ég er ekki smekksmanneskja...

Fólk spyr sig eflaust: AFHVERJU ER HÚN AÐ BLOGGA? Jú.. svarið er heldur einfalt, ég HEF TÍMA! þetta er ótrúlega furðulegt, að hafa tíma til þess að liggja bara og gera ekki neitt. Það er orðið frekar langt síðan ég fékk svoleiðis tíma út af fyrir mig, þannig að þegar ég hef smá tima fyrir mig eina veit ég ekki alveg hvað ég á að fara að bralla :S

En eruði búin að spá í því hvað það er STUTT í jólin og félaga?! Ég er komin í alveg KREISÍ jólaskap. Er með Jóladiskinn minn í bílnum og keypti piparkökur áðan svona til þess að bæta smá stemninguna. Ohh ég elska þetta tímabil!

En það eru ekki einungis að koma jól, heldur er DIMMITERING framundan og útskrift (vonandi). Úff, menntaskólagöngunni minni fer sennilega að LJÚKA! þetta er svo skrítið. En ég verð í beinu sambandi í FG því ég ætla að halda áfram í kórnum og svo verð ég með í leikritinu aftur núna :)

Annars er ég ógeðslega reið út í skólann minn núna. Eða ekki skólann bara íþróttakennarana! Ég nenni ekki að útskýra þetta en ég ætla að ræða við skólastjórann og leita réttar míns í ákveðnu máli vegna þess að það er verið að mismuna nemendum og ég er bara VIRKILEGA ósátt!

Helgin mín var í stuttu máli: Góð. Var að vinna alla helgina, sem var OK og hitti Sir Kristínu á laugardaginn. Við fórum á RubyTuesday og leigðum svo einhverja mynd sem reyndist hin versta klámmynd. Frábær leikur og ein besta mynd sem ég hef séð! Sammála Kristín ? ;)

En allavegana, vildi bara láta vita að ÉG LIFI! ... ég lifi alltaf krakkar góðir. Heyrumst :)

Brynja


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 17:14:55 / Brynja

Brynjan Bloggar..

Hæhæ

4-4 fyrir Birninum. Biggi búinn að skora einu sinni og honum er lofað í gríð og erg. Ég fyllist stolti af því að eiga svona frægan kall.. hvernig ætli konu Eiðs Smára líði ?

Allavegana, ég var bara að koma úr vinnunni og er eitthvað að chilla hérna heima. Er að horfa á leikinn og er að vona að Björninn nái að skora eitt mark á fjórum mínútum.

Það var fint í vinnunni. Fór í bíó í gær og út að borða og í bíó í dag. Voðalega nice og algjört chill. Var samt í Sambíóunum í dag á einhverri íslenskri mynd og það heyrðist ekki NEITT í andskotans myndinni!!! allavegana var þetta eitthvað vangefið lágt stillt því ég heyrði næstu manneskju ANDA við hliðina á mér. Svoleiðis á það ekki að vera í bíó..

Nýjasta æðið mitt er SIMS! það er sko EÐAL skemmtun!

Leikritið = GAMAN! Vá, ég elska að leika, ég elska að vera í hóp af fólki sem er skemmtilegt og flippað. Ég elska TUNGLIÐ ;) *hrollur*

NEWSFLASH! Fanney mín ástkæra og Jói hennar, Bigga ástkæri, ERU AÐ FLYTJA SUÐUR EFTIR ÁRAMÓT! Vá, ég fékk tár í augun þegar ég fékk fréttirnar. Get ekki beðið eftir að knúsa hana og segja henni allt! Þetta verður alveg eins og í gamla daga! Ég og hún að mála bæinn rauðan. Hlakka svooo til. Svo eru Biggi og jói mestu mátar svo að þeir geta skemmt sér saman!

Hafiði lent í því að vilja virkilega segja manneskju eitthvað en ekki geta það? Mig langar svo að EYPA yfir eina manneskju en get það ekki af ýmsum ástæðum. Þarf að koma svo mörgu út úr mér en get það ekki. Hef ekki kjarkinn í það...

En jæja, verð að halda áfram að styðja minn mann.

Heyrumst!

Le Brynja ;)

 

BJÖRNINN 6 SR 4 nenenenene :haha: 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 19:32:14 / Brynja

Taka 2

Jæja, ég ætla að reyna einu sinni enn að rita hingað inn nokkur orð krakkar mínir.

Það hefur sko MARGT skeð síðan síðast og ætli ég byrji ekki bara á byrjuninni:

Eg átti afmæli 7. október og hafði það bara svakalega nice. Varð 19 ára og er þar með officially orðin gömul ;) þann 6. hélt ég upp á daginn og borðaði meðal annars BESTA mat í heimi sem móðir mín gerði. Bestu þakkir fyrir það ;) takk líka fyrir allar afmælisgjafirnar sem voru hver annari flottari :)

Ég fór svo í klippingu á Rauðhettu og Úlfinum og lenti á SÚRASTA klippara ever. Ég vissi ekki alveg hvort ég ætti að hlægja eða gráta. Því gæinn virkaði mjög eðlilegur fyrstu 5 mínúturnar en svo fór hann að ræða um kvensjúkdómalækna og segja mér að langamma Davíðs Oddsonar hafi verið svertingi. Svo fékk hann SMS og sagði: "Hey, ég var að fá SMS, á ég að lesa það fyrir þig?" En það var gaman að honum. Ég var þarna inni í 3 tíma og kom út með stutt hár og strýpur. Það kom bara ágætlega út og ég held ég hafi lést um svona 5kg, því hárið á mér var orðið risastórt.

Jul 14, 2007

Like u can see, VERY SHORT!

ég fékk líka hlutverk í leikritinu okkar og ég hlakka ekkert smá til að fá að spreyta mig við það. Vil bara fara að byrja á æfingum svo að við getum farið að sjá smá hvernig þetta kemur til með að verða. Þetta hlutverk GÆTI EKKi verið fjær frá hlutverkinu mínu í fyrra svo það verður gaman að sjá hvað er hægt að gera við þetta ;)

Mar 12, 2007

Í fyrra, bleiki prakkarinn sem talaði eins og karlmaður

Svo var það auðvitað ÞÓRSMÖRK!

Vá hvað það var alltof gaman! Við lögðum af stað klukkan 13 á miðvikudeginum. Það var flippað í rútunni og sungið og grett sig og allan pakkann. Eftir 4 og hálfan tíma!! (JÁ ÉG ER EKKI AÐ ÝKJA) komum við loksins á leiðarenda, sem var Básar í Þórsmörk. Busalufsurnar fengu efri hæðina og við eldra og fallega fólkið fengum neðri hæðina.

Jul 14, 2007

Þegar við komum var bara byrjað á því að slaka á, borða og hafa það gott. Svo um kvöldið fórum við í Draugasöguleik sem endaði með því að einn auminginn á svæðinu fór að grenja (ekki ég sko..) Þegar við vorum orðin nógu andskoti hrædd fórum við út í skóg, í KOLNIÐAMYRKRI (hef aldrei séð jafn mikið myrkur) í andaglas! Ég var samt ekkert rosalega hrædd því að ég tók ostinn minn með mér sem gaf mér styrk og öryggi ;)

Jul 15, 2007

Andaglasið var ekki alveg að virka þannig að við töltum bara aftur inn í kofa og höfðum það nice. ÉG og Hera lögðumst svo niður um 3 og sofnuðum alveg óvart. Þegar við vorum nýbúnar að festa svefn voru strákarnir svo yndislegir að vekja okkur með bílflautu, pottum og sleifum. Afleiðingin var sú að Hildur berglind öskraði eins og óargadýr haha ;)

Daginn eftir vöknuðum við klukkan 12!!!! já við sváfum rosalega lengi og það var rosalega gott *mmm* veðrið var alveg geðveikt! sól, blíða og logn! Ég Hera og Andri fórum í göngutúr í blíðunni og sáum meðal annars fisk í polli! Það fannst mér stórmerkilegt. Eftir þennan ágæta göngutúr fórum við að spjalla við Andra og Stebba og svo var einhver gella sem bara ELTI okkur allan tímann hahaha, það var spes. Svo fórum við að spila.. og gellan líka, því miður, og við lærðum nýtt spil sem heitir forseti. Nokkuð skemmtilegt spil bara.

Jul 15, 2007

Fiskurinn!

Eftir spilatímann ætluðum við Hera að hafa það nice en það tókst ekki alveg því þegar Hera hlussaði sér í rúmið okkar voru strákarnir búnir að TAKA PLÖTUNA undan rúminu þannig að hun þrusaðist á gólfið og lá þar haha. Þeir gerðu þetta alla ferðina og þetta var að gerast, aftur og aftur og aftur. Bara fyndið:!: Við Hera höfðum það svo rosalega nice að við steinrotuðumst! og ég vaknaði bara rétt fyrir 8 þegar borgararnir voru tilbúnir

Jul 15, 2007

Hera liggur eftir að strákarnir tóku plötuna í eitt af mörgum skiptum

Við fengum okkur ógeðslegustu hamborgara í heimi og svo var rölt á brennuna, sem var aðeins frá skálanum. Við löbbuðum í kolniðamyrkri og rigningu og settumst í brekkuna fyrir framan brennuna. Það gekk eitthvað brösulega að kveikja bálið þannig að ég, Valborg og Hera tókum að okkur fjöldasöng og stóðum okkur með prýði ;) svo loksins tókst að kveikja þetta blessaða bál og eftir það var FLUGELDASÝNING! já.. það var flugeldasýning í Þórsmörk :P súrt..

Jul 15, 2007

Jul 15, 2007

Eftir þessa ágætuskemmtun, sykurpúðaát og sykurpúðatroðuppímunn var haldið aftur að skálanum. 2 stelpur týndust, s.s. löbbuðu framhjá og voru einar í myrkrinu og vinkona þeirra panikkaði og hringdi á NEYÐARLÍNUNA hahaha. Þær skiluðu sér nú til bara eftir hálftíma. Við stelpurnar vorum úti eftir brennuna og flippuðum eins og okkur einum er lagið. Það var blankalogn og smá úði en ALLT Í EINU kemur þrusuvindhviða og stendur yfir í 5 sek! Ekkert smá krípí!!!

Jul 15, 2007

Við drifum okkur inn og fórum að spjalla saman. Strákarnir fengu þá hugmynd að labba eitthvert lengst upp á fjall og finna helli sem allir voru að tala um. Klukkan var þá að nálgast miðnætti en við slógum til. Eftir 20 mínútna labb komum við loksins í hellinn OG ÞÁ ÁKVAÐ FÓLKIÐ AÐ FARA AÐ SEGJA DRAUGASÖGUR! ég var alveg að tapa því, ég var orðin svo hrædd!!!

Það voru sagðar svona 6 sögur og svo héldum við niður á leið. Ég fékk alveg dúndrandi hausverk og lagðist aðeins niður sem endaði með því að ég sofnaði :^)

En auðvitað fékk ég engan svefnfrið þannig að klukkan 4 gafst ég upp og fór aftur á fætur. Þá voru strákarnir að plana reif og fóru 15 saman, inn í MINNSTA HERBERGI Í HEIMI að dansa við Scooter, BERIR AÐ OFAN í þokkabót. Þetta var of fyndið. Svo fórum við stelpurnar á eftir þeim að dansa við Britney og þeir læstu okkur inni, very funny!

Það var ekki mikið meira sem gerðist. Jú, einn strákurinn ákvað að prumpa á kveikjara og kveikti í sér. Ég dó úr hlátri!!! svo var bara sofnað á slaginu 7 og vaknað klukkan 10 til að taka saman. Þetta var virkilega vel heppnuð ferð og ég skemmti mér KONUNGLEGA!

Ég og Hera vorum svo að klára fyrsta BootCamp námskeiðið áðan. Enduðum þetta með stæl því Hera fékk næstum því hjartaáfall og ég náði að bleyta allt gólfið með svita. S.s. góður tími. Á morgun er það svo bara 2. tíma útiæfing frá 9-11 og á mánudaginn hefst aftur annað námskeið sem við erum skráðar á.

Ég er líka komin í VETRARFRÍ! :haha: er semsagt í fríi föstudag laugardag sunnudag og mánudag. Ætli maður reyni ekki að djamma eitthvað á morgun. Langar rosalega í bæinn af einhverjum ástæðum (það gerist sko EKKI oft) 

Skólinn gengur annars bara vel, gengur betur í sumum fögum en öðrum. Ég næ enskunni, dönskunni, báðum íslenskunum, fjölmiðlafræði 213, líffræðinni, lok-áfanganum, öðrum íþróttaáfanganum og kórnum og svo eru sagan, hinn íþróttaáfanginn, og hinn fjölmiðlafræðiáfanginn spurning. Íþróttakennararnir í skólanum eru FÁVITAR og taka ekki tillit til neins, virkilega dónalegir og kaldhæðnir, sögukennarinn er bestur í heimi og ég næ alveg ef ég verð dugleg og fjölmiðlafræðikennarinn er að gera mig geðveika vegna þess að þetta er svo óskipulagt hjá henni að ég skil bara ekkert hvað ég á að gera! Óþolandi!

En almáttugur hvað þetta er orðið langt hjá mér!

Ætla að fara í bað og þrífa svitann af mér *gubb*

Brynja duglega!


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:58:51 / Brynja

Þórsmörk

Skellti inn 3 dálkum af myndum úr Þórsmerkurferðinni, check it krakkar OG KOMMENTA! :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 13:32:01 / Brynja

Tími til kominn..

..að gera eitthvað hérna! :)

Það er komið DÁGÓÐUR tími síðan ég lét heyra í mér síðast. Ég ætla að reyna að stikla á stóru og segja ykkur frá því hvað er búið að vera að gerast :)

  • Ég og Hera erum búnar að vera virkilega öflugar í BootCampinu, mér fer alltaf að finnast þetta skemmtilegra og skemmtilegra og auðveldra og auðveldara. Það sýnir bara það að maður er að komast í betra og betra form :haha: ég er að spá í að taka aðrar 12 vikur eftir þetta, ef vel gengur. Ég verð bara að sjá til hvort ég hafi tíma fyrir það.
  • Leiklistin er að fara að skella á og við erum núna búin í tvennum prufum. Þetta voru rosalega skemmtilegar prufur enda þaulreyndur leikstjóri + aðstoðarleikstjóri og ég er bara orðin rosalega spennt! Vona að maður fái eitthvað almennilegt hlutverk því að maður á alltaf að stefna á skref upp á við en ekki niður á við ;) í gær vorum við t.d. í prufum frá 17-22:30 og mér finnst alltaf jafn gaman að hitta alla krakkana, bæði gamla pakkið og svo nýja krakka sem ætla að sýna hvað þeir geta.
  • Skólinn gengur ennþá rosalega vel. Er að bæta við 10um og 9um hér og þar 8) mætti samt alltaf mæta betur en.. þetta fer að lagast. Er bara að bíða eftir miða sem segir mér að drullast til að mæta í skólann.. þá hlýði ég.
  • Vinnan er easy as hell og er bara svaka stuð á þeim bæ. Ég er að vinna svo rosalega lítið að ég hlakka ekkert smá til að mæta alltaf þegar til þess kemur. Enda var þetta mitt 3. heimili í sumar (heima, Biggi, vinnan).
  • Ég hef ekki haft neitt rosalega mikinn tíma fyrir vinana. Fór með Heru í bíó á föst, hitti Rakel elsku í hádeginu á mánudaginn, Kristinu hitti ég síðasta miðvikudag OG HÚN ÆTLAR AÐ BEILA Í KVÖLD (sem er í lagi því hún þarf að læra) vonandi fer þetta að komast í lag bara. Þótt ég efist um það. Maður er í skóla, vinnu, kór, leiklstinni OG bootcamp svo að það er ekki mikill tími afgangs.
  • Ég og Hera erum í gönguhóp í skólanum okkar. Það þýðir að við þurfum að taka 3-4 göngur til að fá íþróttaeiningu. Við ætluðum í okkar fyrstu göngu síðasta laugardag en það endaði mjög skrautlega. Við vöknuðum klukkan 9 og vorum mættar upp á VÍFILFELL klukkan 10. Það var enginn annar mættu svo við hringdum í Hildi sem sagði að gangan hefði færst upp á Helgarfell. Við þutum í hafnarfjörðinn og sáum að hópurinn var kominn nokkuð á undan okkur. Við gengum í ca 2-3 tíma en fundum aldrei neinn og vorum næstum því týndar! En fótsporin okkar hjálpuðu okkur að rata til baka sem betur fer.
  • Ég er að fara í KLIPPINGU á þriðjudaginn og ég hlakka SVO til. Fer á nýja stofu, rauðhetta og úlfurinn, vona að það komi ágætlega út.
  • Svo vil ég minna alla á að ég á AFMÆLI Á SUNNUDAGINN svo að ég býst við smsum, kveðjum á myspace, kveðjum hér og kveðjum þar. :) afmælisdagurinn verður eitthvað rólegur þar sem að ég verð að vinna frá 15-23. :$

En okey, ég ætla að segja þetta gott í bili. Sirs, ég vil hafa hitting fljótlega ilskurnar.

Lovlovlov Brynja


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 18:51:34 / Brynja

:|

Ég fékk hlaupasting Í RASSINN áðan 8|

Þetta var staðfest af BootCamp þjálfara


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 22:35:47 / Brynja

Allt fyrir ástina :*

SÆLAAAAAAAAAAAR 8)

Okey, ég ætla að gerast svo djörf að reyna að blogga aftur eftir misheppnaða tilraun hérna um daginn..

Það sem er búið að vera helst á döfinni ertu auðvitað leikprufurnar, sem gengu bara alveg glimrandi vel að mínu mati :) svo auðvitað chillið mitt og ekkert meira.

Ok nei.. ég nenni ekki


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 22:19:58 / Brynja

ARG!

ARG! nenni ekki að vera með blogg þegar það lætur svona illa!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8